Annað tæki hlaðið þráðlaust
Settu símann eða annað samhæft tæki á þráðlausa hleðslusvæðið ofan á
hátalaranum. Hleðslustöðuljósin verða hvít og blikka meðan á hleðslu stendur. Lagaðu
stöðu símans ef hleðslustöðuljósin blikka hratt. Þegar síminn er fullhlaðinn slokknar
á hleðslustöðuljósunum.
Hægt er að hlusta á tónlist meðan á hleðslu stendur en gættu þess að stilla tónlistina
ekki of hátt, því titringurinn gæti orðið til þess að síminn detti af hátalaranum.
Eðlilegt er að hátalarinn og síminn hitni, og þeir geta jafnvel hitnað enn frekar ef þú
notar símann til dæmis til að straumspila tónlist á meðan hann hleðst. Hátalarinn
slekkur sjálfkrafa á sér ef hann verður of heitur. Bíddu í 5 mínútur og reyndu aftur.
Tryggðu að ekkert liggi á hátalaranum. Ef eitthvað annað en síminn er á hátalaranum
hleður hátalarinn ekki og hleðslustöðuljósin blikka hratt.